Title | : | Elling: Fugladansinn |
---|---|---|
Author | : | Ingvar Ambjørnsen |
Release | : | 2024-04-01 |
Kind | : | ebook |
Genre | : | Fiction & Literature, Books |
Size | : | 1425320 |
Önnur bókin í seríunni um Elling er sjálfstætt framhald þeirrar fyrstu, Paradís í sjónmáli. Þegar hér er komið við sögu er aðalpersónan Elling kominn á geðsjúkrahús, þar sem hann deilir herbergi með manni að nafni Kjell Bjarne. Með þeim tveimur tekst fljótt ansi sérstök vinátta, þar sem báðir eiga það sameiginlegt að hafa verið mjög einmana í gegnum tíðina. Á spítalanum tekur Elling einnig til við að skrifa hugsanir sínar og hugleiðingar niður, nokkuð sem gefur lesandanum enn betri innsýn inn í sérkennilegan hugarheim hans. Hann fær það verkefni að skrifa um ferðalag sitt með móður sinni til Benidorm, en það ferðalag endaði með ósköpum. Kvikmyndin "Mors Elling" var gerð eftir bókinni. |